Já ég er komin í hóp þeirra sem kallast "skógar rottur" þar sem ég mun meira og minna búa í vatnaskógi í haust við vinnu á fermingarnámskeiðum.
Ég er nú bara nokkuð spennt fyrir því þar sem vatnaskógur er nottla eðal staður og fint bara að vera hér :)
Ég reikna nú ekki mikið með því að blogga en ákvað að láta að heyra aðeins í mér fyrst ég er nú í tölvunni og er eiginlega bara að láta mér leiðast.
Ég er semsagt að bíða eftir hinum gæslumanninum og við ætlum að klára að klippa stuttmynd. Ég þori ekki að gera of mikið því ég er svo hrædd um að klúðra einhverju og það er ekki alveg nógu gott haha!
Þannig að ég sit bara hér og spjalla við nokkra vini á msn......en allavega!
Núna er ég búin að vera á landinu í næstum 2 vikur og er það bara ágætt. Ég er ennþá að venjast þessu, er ekki búin að venjast verðinu á hlutum og mun örugglega bara ekki gera það, þar sem allt er bara fáránlega dýrt!
Ég vissi alveg að ísland væri dýrt en ég var búin að gleyma hversu virkilega dýrt það er!
Ég t.d. fór út í búð á mánudaginn...mánudagsmorgun þannig að bara 10-11 var opið og ég borgaði heilar 500kr fyrir tannbursta og tissue! Ég var ekki alveg að fíla það!
Og hvað er málið með að matvörubúðir opni ekki fyrr en einhvern tíma á bilinu 10-12?? hvaða rugl er það?!
Ég vil fá eins og úti þar sem matvöruverslunin opnar kl. 7 og lokar á miðnætti! Það væri eðal!
En allavega þetta er nóg í bili!